Frábærar, nýuppgerðar íbúðir
á besta stað í Stykkishólmi.
Raðhúsið var byggt árið 2005.
Stutt í alla þjónustu og sundlaugin hinum megin við götuna.
Íbúðirnar eru 4ra herbergja, um 70 m2, og geta hýst allt að 5 manns.
Á efri hæð er forstofa, eitt herbergi og samliggjandi eldhús og stofa. Svalir eru út af stofu.
Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Hringstigi er á milli hæða.
Sængur og koddar eru fyrir 5 auk þess er í íbúðunum barnarúm og barnastóll.
Í eldhúsinu er allur almennur borðbúnaður, eldavél með bakaraofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. ásamt öðrum daglegum eldhúsáhöldum.
Ekki er séð fyrir sængurverum, handklæðum, viskastykkjum og tuskum.
Lykla er hægt að nálgast í lyklaboxi við dyrnar við komu.
Umsjónarmaður er á svæðinu yfir sumartímann og er gestum innan handar.
Á öðrum tímum er hægt að ná í hann í síma.
Í Stykkishólmi má finna fjölbreytt veitinga- og kaffihús, söfn, glæsilega sundlaug og 9 holu golfvöll. Ferjan Baldur siglir yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey, eyjarinnar þar sem tíminn stendur í stað. Daglega eru skoðunarferðir um Breiðafjarðareyjarnar óteljandi þar sem náttúran og fuglalíf er skoðað.
Snæfellsnes býður svo upp á fjölbreytt og töfrandi landslag þar má finna fjölmarga áhugaverða staði, afþreyingu og gönguleiðir. Svo má ekki gleyma hinum dulmagnaða Snæfellsjökli ásamt yngsta þjóðgarði landsins.